- Þessu skilti er ég búin að koma fyrir á hliðinu í garðinum...alltaf eitthvað bölvað lið að stytta sér leið og um leið á þessari leið þeirra í gegnum garðinn verð ég leið því ég hrekk alltaf í kút við þessa truflun. En ég er að sinna mikilvægum hlutum eins og lærdómi í léttum klæðnaði.
- Nú er ég búin að breyta um stíl svona rétt á meðan skólinn er að klárast. Það yrðir engin á mig af ástæðulausu. Þráðurinn er stuttur í þessari. Steinunn hefur komist í raun um það og grætur enn vegna þess.
- p.s af þessari færslu má m.a draga þann lærdóm að orðið "leið" getur haft margar merkingar. Það er aldrei of oft notað.
Gulla has spoken.
4 ummæli:
Huh já þú grætir mann eins og ekkert sé, en ég átti það víst skilið...;) Skil bara ekki hvers Léttfeti átti að gjalda!!
Gangi þér vel dúllan mín !!!! Þú ert dugleg og getur allt sem þú villt !!!!! :)
Luv Anna
Ég held að ég hafi bara ekki séð eða heyrt í þér síðan á KFC hérna forðum þegar ég rakst á þig snæða með yndisfríðum vinnufélögum :) verðum nú að fara að taka djamm á þetta og drekka okkur helfullar, sumarið 2009, hvernig lýst þér á það??
Mér þykir vænt um þig Gullan mín!
Skrifa ummæli